← Sjá öll verkefnin

Þrenn verðlaun í alþjóðlegu IIIDawards 2026

Kolofon

2026

IIIDawards, 2026

Þrjú verkefni okkar hlutu nýverið verðlaun í alþjóðlegu IIIDawards 2026. Merkingar fyrir Forsætisráðuneytið í flokknum „Wayfinding“ og fyrir KEF bílastæðamerkingar og Strætó á Menningarnótt í flokknum „Traffic and Public Transports“. IIID-verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi árangur á þessu sviði og teljast meðal virtustu alþjóðlegu viðurkenninga sem veittar eru fyrir upplýsingahönnun. Þetta er í annað sinn sem Kolofon hlýtur verðlaun í IIIDawards en árið 2023 hlaut stofan tvenn verðlaun fyrir verkefni sem unnin voru fyrir Strætó og Vegagerðina. Keppnin er á vegum IIID (International Institute of Information Design) og er haldin á þriggja ára fresti. Félagið er einn virtasti vettvangur upplýsingahönnunar í heiminum og tengir saman fagfólk sem vinnur að því að gera upplýsingar skýrari, aðgengilegri og auðskiljanlegri í daglegu lífi, atvinnulífi, menntun og vísindum. Með yfir fjögurra áratuga reynslu er stofnunin í dag viðurkennd sem eitt helsta afl heims á þessu sérsviði. Kolofon hefur áratuga reynslu á sviði upplýsingahönnunar og leggur sig fram um að skapa skýrar og vel útfærðar lausnir á fallegan hátt sem auðvelda fólki að rata, skilja og nýta upplýsingar. Verðlaunaverkefnin voru unnin í nánu samstarfi við góða viðskiptavini og samstarfsaðila. Til að mynda hefur samstarf við arkitekta verið farsælt, enda skarast markmið beggja greina á mörgum sviðum. Á meðan arkitektúr mótar rými og upplifun þeirra, tryggir upplýsingahönnun að fólk geti átt auðvelt með að lesa umhverfið, rata um það og nýta það á öruggan og skilvirkan hátt. Þegar upplýsingahönnun er samþætt frá upphafi hönnunarferlis verður niðurstaðan sterkari. Leiðarkerfi, merkingar og upplýsingagjöf verða náttúrulegur hluti af umhverfinu fremur en viðbót sem bætt er við síðar. Þannig skapast heildstæðari upplifun fyrir notendur, aukin notagildi fyrir eigendur og betri nýting á því rými sem arkitektarnir hafa skapað. Verkefnin sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni eru góð dæmi um hvernig samvinna ólíkra sérfræðinga getur skilað lausnum þar sem fagþekking hvers aðila styrkir heildina og lyftir gæðum verkefnisins á hærra plan. Okkur þykir sérstaklega vænt um að fá þessa viðurkenningu og þökkum góðum samstarfsaðilum fyrir samvinnuna.

Framleiðsla: Merking

Leturhönnun: Gunnar Vilhjálmsson – Universal Thirst

Arkitektúr: Kurt og Pí

Content section 1
Content section 2
Content section 3
Content section 4