Hugverkastofan
Hugverkastofan
2025
Meginmarkmið endurmörkunar var að gera heildarásýnd aðgengilegri og notendavænni og færa hana nær stefnu og gildum Hugverkastofunnar. Nútímalegri og heilsteyptari ásýnd, sem sýnir Hugverkastofuna sem faglega og um leið aðgengilega stofnun. Hlutverk Hugverkastofunnar er m.a. að halda utan um einkaleyfi, hugmyndir og verndun þeirra — eins konar rammi utan um hugverk. Innblástur var sóttur í þennan huglæga ramma og hann útfærður í hönnun grunnútlitsins. Ramminn hjálpar til við að skapa heildstætt útlit, sem hægt er að brjóta upp með mismunandi lita- og myndanotkun. Til að búa til „rammann“ er merkið slitið frá heitinu og stillt upp í eitthvert hornið á fletinum. Heitið, fyrirsögnin og annar texti deilast á hin þrjú hornin. Þetta skapar ákveðna dýnamík og sérstöðu.
Upprunalegt merki: Oscar Bjarnason