← Sjá öll verkefnin

Stéttin

Þekkingarnet Þingeyinga

2022

Stéttin er samfélag stofnana, fyrirtækja og einstaklinga á Húsavík sem starfa við nýsköpun, rannsóknir, þróun og þekkingarstarfsemi. Starfsemin er staðsett í gömlum húsum sem hafa verið tengd með nýbyggingu, við höfnina í Húsavík. Húsnæðið er á svæði sem hefur mikla sögu í atvinnuþróun samfélagsins og kemur nafnið úr sögu þess. Merkið er gert til að minna á iðnaðinn sem á undan kom og um leið sem látlaus en sterk tenging á milli þeirra ólíku hópa sem starfa á Stéttinni. Stéttin hýsir 25-30 heilsársstarfsmenn, auk fjölda annarra í tímabundnum verkefnum og störfum. Auk þeirra sem hafa fast aðsetur eru margir sem koma við í styttri tíma og nýta sér fljótandi vinnuaðstöðu. Stéttin býður upp á fjölda fundarherbergja, fullkomið FabLab og í hjartanu á þessu öllu er bjart og fallegt samverurými.

Content section 1
Content section 2
Content section 3 - LeftContent section 3 - Right
Content section 4
Content section 5